Um okkur
LifeVac er flutt inn til Íslands af Bincat ehf. og keypt af EC Life AS, viðurkenndum umboðsaðila á norðurlöndunum. LifeVac var þróað í Bandaríkjunum af Arthur Lih eftir að hann varð vitni að hörmulegu atviki þar sem ungur drengur lést vegna vínberja sem stíflaði öndunarveg hans og Heimlich-aðferðin mistókst. Þetta atvik hvatti Lih til að þróa lækningatæki, sérstaklega hannað til að fjarlægja aðskotahluti úr öndunarvegi.
Frá því Heimlich-herferðin var kynnt á áttunda áratugnum hefur lítið verið um nýjungar í aðferðum til að koma í veg fyrir köfnun.
Hefðbundin skyndihjálp hefur sýnt sig og sannað í gegnum tíðna en staðreyndin er sú að hún virkar ekki í öllum tilfellum svo þörf er á búnaði sem gæti reynst vel í þeim aðstæðum.
LifeVac táknar mikilvæga þróun í þessa átt. Við höfum brennandi sýn um að LifeVac muni bjarga mannslífum við köfnunaraðstæður og að enginn ætti að þurfa að látast eða örkumlast vegna köfnunar á aðskotahlut. Markmið okkar er að LifeVac verði á endanum sjálfsagður búnaður á heimilum og hjá opinberum stofnunum.